Hvað er í gangi með SÍ ?????

Hvað í ósköpunum er Seðlabanki Íslands að skipta sér af því hvort einhverjir misvelgefnir íþróttafréttamenn missi vinnuna? Er kallinn í brúnni farinn að skipta sér af öllu? Mega frjálsir og óháðir fjölmiðlar ekki segja upp fólki eins og aðrir í sparnaðarskyni á erfiðum tímum? Má fjársvelt opinbert hlutafélag í fjölmiðlarekstri ekki segja upp fólki í sparnaðarskyni? Ég er nú hræddur um það. Það væri bara óábyrgt af stjórnendum þessara fjölmiðla að hagræða ekki í sínum rekstri á þessum síðustu og verstu!

Kveðja, Læknirinn
loftur


mbl.is Uppsagnir íþróttafréttamanna áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú vona ég innilega að þú sért að grínast.

SÍ er að sjálfsögðu Samtök íþróttafréttamanna eins og kemur meira að segja fram í fréttinni

Klókur maður 11.12.2008 kl. 17:22

2 Smámynd: Sigurjón

Klókur maður ætti að sjá húmorinn í þessu...

Sigurjón, 11.12.2008 kl. 17:27

3 identicon

Ef þetta reynist rétt hjá þér Klóki þá er það verulegt áhyggjuefni að þessi samtök velji sér sömu skammstöfun og Seðlabanki Íslands. Þessi samtök verða aldrei tekin alvarlega.

Kveðja, Loftur læknir

Læknirinn 11.12.2008 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband