7.7.2008 | 11:15
Stálu senunni.....!
Það má með sanni segja að fleiri en þessi seinheppni þjófur hafi stolið senunni á Akureyri um helgina. Þrátt fyrir dræma uppskeru var það orðið á grasinu að Hvíti Riddarinn hafi spilað skemmtilegsta boltann á Pollamóti Þórs þetta árið. Eru menn farnir að spá liðinu stórum hlutum á komandi árum. Takk fyrir góða helgi drengir.
Úrslit leikja:
1. Riddarinn - Ufsinn 1-1 (mark Davíð)
2. Riddarinn - Hrafnkell Freysgoði 2-1 (mörk: Jói Ben 2)
3. Riddarinn - UMF Óþokki 1-1 (mark: Davíð)
4. Riddarinn - Örás Group 4-4 (mörk: Steini 3, Jói Ben)
5. Riddarinn - NP3 4-1 (mörk: Jói Ben, Steini, Svanni, Nonni bróðir)
6. Riddarinn - Draumurinn 0-1 (16 liða úrslit)
Seinheppinn þjófur á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Takið eftir stelpunni á bakvið markið á efstu myndinni. Hún er að benda á Nonna markmann og hlægja af honum..... Þvílíkur skellur!
Kv. Svanni E.
Svanni 7.7.2008 kl. 14:59
Nei Svanni minn, ef þú skoðar myndina betur er hún að benda á strákinn sem fór aldrei inná, þig........þvílíkur skellur
En takk fyrir skemmtilega helgi drengir
kv. Nonni Mark
Nonni Mark 9.7.2008 kl. 01:11
Þetta er Tanja..hún var að benda á einhverja kalla að hita upp..hanni fannst frekar fyndið að sjá gamla polla gera háar
Ragnhildur;* 9.7.2008 kl. 18:43
Hæbb..
hehe, þetta var bara mjöööög fyndið að sjá þessa polla vera að gera háar
en:
ÁFRAM HVÍTI RIDDARINN!!!!
Bæbææ..
Tanja (góður stuðningsmaður).
Tanja (stelpan sem er að bendaa) 13.7.2008 kl. 20:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.